Veröld Strympu sætu
ÚÚÚ, skemmtilegt;)
Stjórnmálafræðingar framtíðarinnar
03.09.2007 11:51:42 / strympa

Öll þessi ólétta!

 

Í tilefni dagsins set ég inn gamla færslu sem ég skrifaði í október 2006.  

Ólétt kona

  

Einu sinni var ólétt kona sem fann ólétta konu og sagði þá óléttu konunni ýmislegt um óléttar konur. Ólétta konan fann fyrir óléttum konum og ólétta konan fór til óléttu konunnar og ólétta konan var ólétt og varð ólétt og er ólétt og þessi er ólétt og þær eru óléttar og þegar maður er óléttur þá er konan ólétt og fólk segir ólétta konan. Ólétta konan verður þreytt því ólétta konan er ólétt og þegar konan er ólétta þá er hún ó létt. Ólétta kona um ólétta konu frá óléttri konu til óléttrar konu. Ólétta konan las blaðið um óléttar konur og þá kom ólétt kona og sagði við óléttu konuna að blað um óléttar konur væri bara fyrir óléttar konur og þá sagði ólétta konan að hún væri ólétt kona. Þá var ólétta konan hissa.

Ég er ekki ólétt.


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 11:49:21 / strympa

Ólétt kona um ólétta konu frá...

Það er ekkert smá haustlegt úti! Skólinn er byrjaður hjá Heiðdísi og allt er eða komast í rútínu. Hún er meira að segja farin að æfa fótbolta;) Miklar fréttir eru þær að hún Elva konan hans Jóa (pabba Heiðdísar) var að eignast lítinn strák þann 1. september og er litlan mín því orðin stóra systir:)

Ég skrapp upp á meðgöngudeild áðan að kíkja á hana Dagnýju. Litlunni hennar datt í hug að taka smá forskot á sæluna og fara að drífa sig í heiminn. Það var nú eh hægt að tala um fyrir henni og hún sættist á að vera aðeins lengur inni í heita mallanum. En með þeim skilyrðum að mamma hennar gerði EKKI NEITT meðan hún biði:) Svo Dagný fer heim af spítlanum á eftir - til þess eins að liggja og slaaaaka á. Það gæti nú verið erfitt fyrir þessa aktívu konu... ;)

Upp á meðgöngudeild hitti ég fyrrum skólabróðir minn sem er árinu eldri en ég og hann er að bíða eftir að þriðja barnið hans komi í heiminn! Engin smá dugnaður þar:) Það er ekki laust við að ég hafi öfundað hann smá...

Systir mín er líka ólétt og á að eiga í október. Hún er komin með roosa stóra og flotta bumbu. Hún er algjört bjútí svona ólétt:) Eins og allar konur svo sem sem ganga með barn. Ohh það verður svo gaman að verða frænka:D

Þær Jódís og Guðrún voru líka að eignast lítinn strák. Hann er ekkert smá sætur. Það er hægt að sjá myndir af honum á síðunni hennar Jódísar: http://blog.central.is/jodis.

Það kemur ólétt kona í heimsókn til mín í kvöld:) Það er alltaf svo gaman að fylgjast með svona fallegum bumbum og ég hlakka til að sjá hversu mikið hún hefur stækkað síðan ég sá hana seinast.

Ein samstarskonan mín hérna í vinnunni er líka ólétt og fleiri og fleiri og fleiri...

Það er svo gaman að þessu:) Til hamingju allar!


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 15:50:38 / strympa

umhverfisvernd

Þegar maður er búinn að heyra of mikið um mengun og hvað allir eru að standa sig illa við að framfylgja því sem stefnt var að í Ríó ráðstefnunni 1992 er alltaf gott að fá svona góða og jákvæða punkta til að hugga sig á.

http://www.samband.is/dagskra21/default.asp?id=589


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 11:44:40 / strympa

So much better when we´re together...

Ég get varla haldið nafnbótinni "lélegur bloggari"! Það passar betur að segja "enginn bloggari".

Sumarið er búið að vera ÆÐI! Búin að fara í nokkur ferðalög, hvert öðru skemmtilegara:) Er búin að fara 3x á Hnappavelli að klifra með Bjarneyju og Heiðdísi, búin að fara hringinn í kringum þetta fallega land (með Bjarneyju og Heiðdísi) og búin að njóta Reykjavíkur í tætlur. Ég fór líka í Kirkjulækjarkot með Heiðdísi, Díönu og Amöndu um Versó og það var yndislegt eins og seinast.

Vinnan mín er mögnuð, sú skemmtilegasta sem ég hef haft til þessa.

Það eina sem er leiðinlegt núna er hvað ég er búin að vera í miklu húsnæðisbrasi og hvað rútínan er búin að vera lítil. En svona er þetta stundum!

Ég er bara ein í bænum núna því hún Heiðdís Anna Ófelía er upp í sveit hjá ömmu sinni og afa og hún Bjarney mín er í New York City. Ég sakna þeirra... mikið... sakna þeirra mikið... :(

Vá hvað það er skrítið að vera ekki að fara að setjast á skólabekk í haust. Það er bara furðulegt. Það er ekki laust við að ég sakni þess svoldið. Þessi ár mín í HÍ hafa verið yndisleg. Bjútíful alveg!!

Well - yfir og út!


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 15:34:11 / strympa

Fröken 36 og 2/3

Þú ert falleg svona nývöknuð, þú ert allt sem ég óska mér:)

Þegar ég fór út í morgun var veðrið yndislegt og fuglarnir sungu. Og ég söng Bubba.

Ég er að læra undir Öryggi og samvinnu í alþjóðakerfinu. Þetta finnst mér merkilegt: Japan er annað stærsta hagkerfi heimsins og eitt þróaðasta land heims. Það býr yfir getu til þess að vígvæðast hratt og örugglega. Japanir hafa sýnt tákn um aukinn vilja til að axla meiri ábyrgð á alþjóðavettvangi. 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 00:32:06 / strympa

Bara ef...

Bara ef það væru engin stríð. Bara ef það væri enginn vondur. Hvað ef allir hugsuðu um náungann? Hvað ef allir væru eins og Ghandi? Hvað ef ALLIR kysu að takast á við mengun jarðar? Hvað ef Jesús væri enn á lífi? Hvað ef allir hugleiddu og findu frið? Hvað ef fólk væri ánægt með það sem það hefur? Bara ef fólk kynni að fyrirgefa. Bara ef fólk kynni að byðjast fyrirgefningar. Bara ef fólk bætti fyrir brot sín.

ÉG bið fyrir andlegum framförum, fyrir mig og aðra jarðarbúa.

Ó well, gerum við ekki öll okkar besta á hverri stundu fyrir sig?

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 10:39:14 / strympa

Kúlíjó

Ég er að segja ykkur að það er ALLT að gerast:) Hver dagur er öðrum skemmtilegri. Ég er á fljúgandi ferð með BA ritgerðina mína og alltaf að gera eh skemmtilegt.

Ég held klifur sé ein skemmtilegasta íþrótt sem hægt er að æfa. Þegar ég loka augunum á kvöldin þá sé ég fyrir mér hreyfingar og leiðir og festur og veggi og ... Ég er að æfa mig að fara V2 leið núna. Það er nú ekki mikið en það er nóg fyrir mig í bili. Ég á það til að bera mig of mikið saman við hinar stelpurnar sem eru að æfa og þær eru allar búnar að æfa (talið í árum) lengur en ég. Ég get orðið svo óþolinmóð og svekkt ef ég kemst ekki ákveðnar leiðir. En hér þarf ég bara að halda áfram líka, eins og annarstaðar í lífinu:)

Klifur er nefnilega eins og lífið sjálft, hvorki meira né minna! Ég (og fólk) byrja á auðveldum verkefnum og eftir því sem ég þroskast koma erfiðari verkefni. Svo er ég alltaf að detta en dett aldrei langt því dýnan fer ekki neitt. Alltaf er ég gripin, sama hvað ég geri kjánalega hreyfingu eða missi takið eða hvað sem er. Og þegar ég dett þarf ég bara að standa upp, kannski kvíla smá, og leggja svo aftur í hann. Það þýðir ekkert að gefast upp ef ég ætla að stefna lengra. En það er vissulega val, ég má alveg vera léleg :) En ég vil það ekki, þetta eru ögrandi verkefni sem ég fíla. Ohh, ég get ekki beðið eftir að fara aftur í klifur í dag;)

Ég held að Anna Vala og Addi og jafnvel hann Þórir ætli að koma með okkur Heiðdísi í klifur í kvöld. Það verða allir húkt sem prófa þetta. Ég held ég ætti að vera á prósentum hjá Klifurhúsinu því ég dreg svo marga með mér:!:

Jæja, back to the BA ritgerð - kisses and hugs


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 20:54:15 / strympa

Nokkuð smart!

When a GIRL is quiet ... millions of things are running in her mind

When a GIRL is not arguing ... she is thinking deeply

When a GIRL looks at u with eyes full of questions ... she is wondering how
long you will be around

When a GIRL answers " I'm fine " after a few seconds ... she is not fine at
all

When a GIRL stares at you ... she is wondering why you are lying

When a GIRL lays on your chest ... she is wishing for you to be hers forever

When a GIRL wants to see you everyday... she wants to be pampered

When a GIRL says " I love you " ... she means it

When a GIRL says " I miss you " ... no one in this world can miss you more
than that

Life only comes around once make sure u spend it with the right person


Find a guy ..

who calls you beautiful instead of hot

who calls you back when you hang up on him

who will stay awake just to watch you sleep


Wait for the guy

who kisses your forehead

who wants to show you off to the world when you are in your sweats

who holds your hand in front of his friends

who is constantly reminding you of how much he cares about you and how lucky
he is to have you

who turns to his friends and says, "That's her!! "

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 23:58:47 / strympa

I´ll go. Ali is my cousin. Its my duty.

Það er rólegt föstudagskvöld og ég sit heima að horfa á vertical Limit. Það bætir upp fyrir það að ég komst ekki á klifurvídjóið í Klifurhúsinu í gærkvöldi. :)

Dagurinn er búinn að vera skrítinn og ég er uppgefin. Stundum þarf bara að treysta í blindni... Það er fyndni í því í gær sagði ég, OK, ég er tilbúin í næsta verkefni, ég vil meira, bring it on! Ég fékk það sem ég bað um og það er súrsætt:) En ég veit að allt fer vel, meðan ég treysti!

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 01:49:20 / strympa

Ég ætla að verða... allt þegar ég verð stór!

Krúttan mín var að hugsa með sér um daginn hvað hún ætti að verða að atvinnu þegar hún yrði eldri. Starfsheitin komu í þessari röð: ballerína eða söngvari, ...eða pönkari. Kannski leikari!

Getur maður verið pönkari að atvinnu??  

Ég man að ég ætlaði alltaf að verða svo margt! Ég gat ekki valið á milli alls sem var í boði. Kennari, dýralæknir, bóndi, búðarkona, flugfreyja, flugmaður og ráðgjafi var allt heillandi. Svo má ekki gleyma því að ég ætlaði að eiga níu börn! Nú er ég nýlega orðin 25 ára og á eitt barn, búin að læra dagmömmuna, naglafræði, er í HÍ að læra stjórnmálafræði og tómstundafræði og er einngi byrjuð í fjarnámi að læra Childbirth education og að verða doula (hjálparmóðir). Svo ætla ég mér í mastersnám í fíknifræði og veit bara að ég á eftir að læra miklu, miklu meira. Að læra er greinilega óstöðvandi baktería, eftir því sem ég læri meira því meira átta ég mig á hvað það er margt sem ég veit ekki 8| En þetta er skemmtileg baktería og uppbyggjandi, því finnst mér gaman að hlusta á dóttir mína velta þessari sígildu spurningu fyrir sér, hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór?

 :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 22:55:43 / strympa

Djódísa

 Jódís er svo mikil pía að hún er farin að selja fjaðrahattana sína og spennurnar í Gyllta kettinum. Þær eru ææææði! Allir að kíkja í Gyllta köttin og skoða og kaupa.


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 23:53:02 / strympa

Ástin

"Þegar maður verður skotin í ástfanginn, þá er það rosalega sárt og maður getur meitt sig alveg fullt."
-Magnús 7. ára.

"Ég veit ekki alveg hvers vegna það eru svona margir ástfangnir,
en ég held það sé vegna þess að konur eru með ilmvatn og karlar rakspíra
og það er þá líklega vegna þess að þau ilma svo vel. Þess vegna seljast ilmvötn svo mikið.
Mamma kaupir alltaf fullt þegar hún fer til útlanda og oftast fyrir pabba."
-Siggi 8. ára.

"Ég hef heyrt að ástin og að verða ástfanginn sé það mikilvægasta í heiminum,
en það er líka mikilvægt að Manchester United gangi vel!"
-Friðrik 8. ára.


"Strax á eftir þegar ég er búinn í leikskólanum ætla ég að finna mér konu."
-Tómas 5 ára.

"Mér finnst voða gaman að horfa á ástina, bara ekki á meðan Birta
og Bárður eru. Ég vil frekar horfa á þau."
-Helga 7. ára.

"Fyrst þegar kærustupar ferð út saman þá skrökva
þau alveg fullt að hvort örðu, en samt fara þau út aftur...og verða kannski hjón?"
-Finnur 10. ára.


"Ég er með svolítið margar freknur, svo að konan mín
verður að hafa freknur líka."
-Andri 6. ára.

"mamma sagði að ég ætti að velja mér mann sem væri
blaður og myndarlegur."
-Katrín 8. ára.

"Æ, hættu að spyrja mig að þessu með ástina, ég fæ hausverk...
ég bara krakki og ég þarf enga ástina."
-Ragnar 7 ára.


"Ég ætla sko ekkert að flýta mér að verða ástfanginn.
Það er alveg nógu erfitt að vera í skólanum."
-Regína 10.ára.


"Mamma segir að karlmenn séu heilalausir. Hún er búin að
reyna að finna marga sem eru með heila en það gengur illa."
-Agnes 10. ára.


"Maður og kona lofa að fara í gegnum allt saman, líka Hvalfjarðagöngin."
-Ómar  7. ára.

"Ég ætla sko ekki að eignast börn! Eða jú kannski? En ekki að skipta um
bleyjur! Ég myndi bara hringja í mömmu og bjóða henni í kaffi til að fá hana til að skipta um bleyjur."
-Kristín 10. ára

"Ástin er mjög asnaleg...en ég held ég verði
samt að prófa hana?"
-Sigrún 9. ára.


"Ástin finnur mann sko alltaf... jafnvel þótt þú reynir
að fela þig. Ég hef reynt að fela mig oft, oft, en alltaf finna stelpurnar mig og verða skotnar í mér."
-Davíð 8. ára.

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 22:40:37 / strympa

Rakel Rán = Rachel Robbery

Ég er komin með myspace, ég er komin með myspace!!! Ég veit ekki alveg afhverju... en þannig er nú staðan samt. Kíkið: myspace.com/rachelrobbery

Ég fór til Akureyrar með Hjalta og Heiðdísi á miðvikudaginn seinasta og kom til baka í gærkvöldi. Það var alveg frábært og ég hitti fullt af góðu fólki. Gerði reyndar ekki mikið en klifraði inni hjá björgunarsveitinni Súlum, fór í bíó með Atla, kaffihús með Kristínu Þóru, fékk Ósk í heimsókn og naut þess að hitta á föðurfjölskyldu dóttur minnar. Heiðdís er núna rosa spennt því hún Elva kona pabba hennar er með barn í maganum og er komin fjóra mánuði á leið! Heiðdís Anna er því að verða stóra systir :) Og ekki nóg með það heldur eru þau líka að fara að gifta sig um páskana og Heiðdís fær að vera brúðarmey. Þvílíkur draumur!!!

Ég er ekki að fara að eignast barn en ég er búin að tryggja það að ég fái að umgangast hellings að óléttum konum og kornabörnum því núna er ég byrjuð í fjarnámi frá útlöndum og er að læra að vera childbirth educator og doula. Það er mjög spennandi og ég get ekki beðið eftir að hella mér út í það. Það þarf þó að bíða aðeins því ég þarf víst að skrifa þessa blessuðu BA ritgerð áður en skiladagur rennur upp. Ég er líka svo heppin að ég fékk örlitla vinnu með skólanum og er að fara að vinna hjá Foreldrahúsi við að sjá um átröskunargrúppu. Ég er himinlifandi yfir því og hlakka mikið til að byrja.

Það eru að skella á meiri breitingar á lífi mínu bráðlega því hún Estrid er að flytja úr húsinu okkar8| Allt hefur sína kosti og galla og hver veit nema það verði loksins pláss fyrir karlmann inn í mitt líf bráðlega! 8)

Og svo allir að mæta á tónleikana á fimmtudaginn. Það verður fjör;)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 21:48:06 / strympa

Lífið er listaverk

Veðrið í dag var yndislegt. Ég er búin að vera veik í marga daga en í dag fór ég út og það var æði. Ástæðan fyrir því að það var æði var veðrið, fegurðin, það sem ég var að gera og frábæra manneskjan sem fór með mér. Ég fór nefnilega að skauta í dag á tjörninni með henni Heiðdísi. Þvílík skemmtun og þvílíkur félagsskapur. Ohh það er ekkert betra en að njóta lífsins á þennan hátt. Nokkurskonar andleg fullnæging. Ég er ofuránægð með lífið!Ég er komin með leiðbeinanda og ritgerðarefni í BA og er að byrja á grunnvinnu. Jibbí!! Ég hlakka til að útskrifast. Aldrei meira BA nám... Yess! Nú á hún Anna Björk að fara að eignast stelpuna sína hvað á hverju og ég er mjög spennt. Ætli hún verði írsk eða íslensk?

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 22:15:49 / strympa

Ég blogga ekki mikið þessa dagan!

Bloggí bloggí bloggí bloggí

Blogg blogg bloggí

Bloggí bloggí blogg blogg bloggí

aha! ok.. Bloggí blogg blogg

OMG Bloggí bloggí

:$Blogg blogg blogg blogg

Einmitt það sem mér fannst líka!


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8